top of page
Þorsteinn Skúli_MM_1327.jpg

Um mig....

Ég er 38 ára Hafnfirðingur og bý þar með eiginkonu minni og þremur börnum. 

Ég útskrifaðist árið 2014 með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík en árið 2019 sótti ég mér viðbótar nám í mannauðsstjórnun frá sama skóla. Ég starfaði hjá VR frá 2007 til 2021 og lengst af sem sérfræðingur á kjaramálasviði. Eftir rúmlega fjórtán skemmtileg ár hjá VR,  þyrsti mig í frekari reynslu og áskoranir. Þannig varð úr að ég réði mig til starfa sem lögfræðingur hjá Sameyki stéttarfélagi. Þaðan lá leið mín til Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Í dag starfa ég á mannauðs- og stefnusviði BYKO. 

 

Ég tel það vera gífurlega reynslu og kost að hafa setið beggja vegna borðsins, reynsla sem kannski ekki margir búa að. Sú reynsla mun nýtast mér sem formaður. Ég er og mun alltaf vera stoltur VR-ingur ! 

 

Eftir þó nokkrar áskoranir og langan umhugsunarfrest hef ég ákveðið að gefa kost á mér sem formaður VR í komandi kosningum í mars nk.

  • Instagram
  • Facebook
  • LinkedIn
bottom of page