top of page

Styrkir í stað varasjóðs

Út með varasjóð og inn með styrki - Hlustum á félagsfólk

Síðan 2006 hefur VR starfrækt “svokallaðan” varasjóð fyrir félagsfólk, fjármagnaðan úr sjúkra- og orlofssjóði félagsins. Þótt sjóðurinn veiti stuðning við mikilvæg útgjöld eins og líkamsrækt, sálfræðiþjónustu, gleraugnakaup og fleira, er fyrirkomulagið ekki eins sanngjarnt.

Í dag eru greiðslur úr varasjóðnum ójafnar og ráðast af tekjum félagsmanna. Dæmi: Félagsmaður með 400 þúsund króna mánaðarlaun fær minna inn í sjóðinn árlega en félagsmaður með 800 þúsund króna laun. En hvað er sanngjarnt við það að stéttarfélag, sem á að berjast fyrir jafnræði og bættum kjörum félagsfólks, mismuni félagsmönnum eftir tekjum þegar kemur að úthlutun styrkja?

Á mínum starfsferli, bæði innan VR og í samtölum við félagsfólk, hefur komið fram mikil óánægja með varasjóðinn og úthlutunarreglur hans. Þegar litið er til annarra stéttarfélaga af svipaðri stærðargráðu má sjá að styrkjum er þar úthlutað á jafnræðisgrundvelli, óháð tekjum.

Sem formaður VR, mun ég leggja mig fram um að breyta fyrirkomulagi varasjóðsins. Tillaga mín er að leggja núverandi sjóð niður og koma á sanngjarnara styrkjakerfi sem nýtist öllu félagsfólki jafnt.

Helstu breytingar sem ég mun leggja til:

  • Greiðslur verði veittar í ákveðnum flokkum sem félagsfólk getur nýtt að eigin vali.

  • Flokkarnir munu innihalda:

    • Líkamsrækt

    • Gleraugnakaup og heyrnartæki

    • Sálfræðiþjónustu og tannlæknakostnað

    • Sjúkraþjálfun

    • Fæðingarstyrk.

Félagsfólk mun geta nýtt sér styrki í fleiri en einum flokki, allt eftir þörfum þeirra. Úthlutanir verða jafnar og byggðar á þeirri sýn að tryggja réttlæti og gagnsæi, líkt og tíðkast hjá öðrum stéttarfélögum.

Þetta nýja fyrirkomulag mun tryggja að allt félagsfólk VR fái jöfn tækifæri til að nýta sér styrki félagsins – óháð tekjum. Ég er sannfærður um að þessi breyting myndi styrkja félagsandann og stuðla að auknu trausti félagsfólks á VR.

  • Instagram
  • Facebook
  • LinkedIn
bottom of page