Þorsteinn Skúli Sveinsson
Á Kjaramáli - gefum félagsfólki VR rödd
Leikskóli fyrir börn félagsfólks
Væri ekki frábært ef börn félagsfólks fengju öruggt pláss á leikskóla eftir fæðingarorlof?
Undanfarin ár hafa dagvistunarmál barna á Íslandi verið umdeild. Foreldrar hafa verið í vandræðum með að koma börnum sínum í dagvistun að loknu fæðingarorlofi sökum plássleysis. Þessi staða veldur nýbökuðum foreldrum óþarfa áhyggjum og dregur úr gleði annars dásamlegs tímabils í lífi þeirra.
Á sama tíma fer fæðingum fækkandi á Íslandi ár frá ári. Er ekki líklegt að ein af meginástæðunum sé einmitt þessi óvissa og skortur á nauðsynlegum stoðum fyrir foreldra? Dagvistunarúrræði eru takmörkuð, mannekla á leikskólum er veruleg og fjárhagslegt álag á foreldra er gríðarlegt. Háir vextir, ófullnægjandi greiðslur í fæðingarorlofi og óvissan um hvað tekur við þegar fæðingarorlofi lýkur skapa óþarfa áhyggjur hjá foreldrum.
Til að tryggja faglega og raunhæfa framkvæmd mun ég beita mér fyrir því að stofna verkefnahóp með sérfræðingum, sem munu vinna að því að útfæra allar hliðar verkefnisins. Ég er sannfærður um að þessi lausn myndi hafa jákvæð áhrif á félagsfólk VR – því hugsaðu þér, hvernig væri að geta verið í fæðingarorlofi án þess að óvissan um framhaldið væri stöðugt á bak við eyrað?
Margir spyrja sig hvernig slíkur leikskóli yrði fjármagnaður. Hér er einföld lausn:
-
Stofnkostnaður: Mun koma frá VR, á sama hátt og félagið hefur lagt til fjármagn í húsnæðisuppbyggingu eins og Blævar.
-
Húsnæði: Með því að gera samning við leigufélag um leigu á húsnæði undir starfsemina sparast kostnaður við byggingu.
-
Rekstur: Greiðslur frá foreldrum ásamt niðurgreiðslu frá sveitarfélögum munu standa undir rekstri leikskólans.
Skortur á dagvistunarúrræði er eitt stærsta áhyggjuefni margra foreldra í dag. Með því að beita mér fyrir úrbótum á þessu sviði, vil ég tryggja að félagsmenn VR njóti öryggis og stöðugleika í þessum mikilvæga áfanga lífsins.