top of page

Jöfnun réttinda á vinnumarkaði

Jöfnun réttinda milli almenns- og opinbers vinnumarkaðar - áframhaldandi vinna fyrir réttlæti

Á undanförnum árum hefur verið unnið markvisst að því að jafna réttindi milli almenns og opinbers vinnumarkaðar, meðal annars með jöfnun lífeyrisréttinda og annarra kjaraþátta. Þetta hefur verið mikilvægt skref í átt að réttlæti og jafnræði fyrir alla á vinnumarkaði.

Þrátt fyrir þennan árangur er enn verk að vinna til að tryggja að félagsfólk VR njóti sömu kjara og réttinda og starfsfólk á opinbera vinnumarkaðnum.

Sem formaður formaður VR, mun ég í næstu kjarasamningum berjast fyrir því að halda áfram þessari góðu vinnu. Ég mun berjast fyrir því að félagsfólk VR njóti jafnra kjara og réttinda, meðal annars:

  • 30 daga orlof fyrir alla félagsmenn.

  • 36 stunda vinnuviku.

Breytingarnar hafa í för með sér:

  • Betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs: Með styttri vinnuviku og lengra orlofi fá félagsmenn betra tækifæri til að hlaða orku og njóta lífsins með fjölskyldu og vinum.

  • Jafnræði á vinnumarkaði: Félagsfólk VR eiga rétt á sömu kjörum og þeir sem starfa á opinbera vinnumarkaðnum. Þetta er spurning um “virðingu og réttlæti”

  • Aukin starfsánægja: Með auknu jafnvægi og sanngjörnum kjörum styrkjum við ánægju félagsfólks gagnvart vinnustað sínum.

Það er mikilvægt að halda áfram að vinna markvisst að því að jafna réttindi milli almenns og opinbers vinnumarkaðar. Með því að tryggja 30 daga orlof og 36 stunda vinnuviku fyrir félagsfólk VR sýnum við raunverulegt forystuhlutverk í baráttunni fyrir sanngirni og betra vinnuumhverfi fyrir alla.

  • Instagram
  • Facebook
  • LinkedIn
bottom of page