Þorsteinn Skúli Sveinsson
Á Kjaramáli - gefum félagsfólki VR rödd
Aukinn veikindaréttur
Veikindaréttur þungaðra kvenna - stuðningur við heilsu og jafnræði
Meðganga er einstakt tímabil, en henni fylgja oft áskoranir. Þó sumar konur upplifi meðgöngu án vandamála, eru margar sem þurfa að takast á við ýmsa fylgikvilla, þreytu og aðra erfiðleika sem geta haft áhrif á getu þeirra til að vinna. Oft er konum ráðlagt að minnka starfshlutfall sitt eða hætta að vinna fjórum vikum fyrir settan dag, til að undirbúa sig fyrir fæðinguna og hvíla sig áður en barnið kemur í heiminn.
Það er því nauðsynlegt að við sem samfélag – og sem stéttarfélag – hlúum vel að þunguðum konum og tryggjum þeim réttláta og sanngjarna stöðu á vinnumarkaði.
Sem formaður VR, mun ég í næstu kjarasamningum beita mér fyrir því að allar félagskonur VR fái auka 4 vikur af launuðum veikindarétti sem þær geta nýtt á meðgöngunni, samkvæmt vottorði frá lækni.
Þetta er mikilvægt að tryggja af nokkrum ástæðum:
-
Vernd veikindaréttarins: Konur eiga ekki að þurfa að ganga á sinn hefðbundna veikindarétt vegna meðgöngu nema nauðsyn krefji.
-
Jafnrétti á vinnumarkaði: Þegar konur snúa aftur til vinnu eftir fæðingarorlof eiga þær að standa jafnfætis körlum og hafa sama veikindarétt og áður.
-
Stuðningur við heilsu: Þetta fyrirkomulag veitir konum aukið öryggi og sveigjanleika á meðgöngu, sem getur haft jákvæð áhrif á bæði líkamlega og andlega heilsu þeirra.
Með því að styðja félagskonur okkar á meðgöngu erum við ekki bara að bæta líf þeirra, heldur líka að styrkja stöðu þeirra á vinnumarkaði. Þetta er skref í rétta átt að því að tryggja jafnræði og réttindi alls félagsfólks VR.
Aukinn veikindaréttur2
Launað leyfi vegna veikinda barna, maka eða foreldra - betri stuðningur fyrir fjölskyldur
Við þekkjum flest hversu mikilvæg fjölskyldan er, sérstaklega þegar einhver nákominn veikist. Hvort sem það er að fylgja barninu sínu til læknis, vera við hlið maka í veikindum eða aðstoða aldraða foreldra við dagleg verkefni, getur slíkt skapað álag sem erfitt er að samræma við vinnu.
Með hækkandi meðalaldri þjóðarinnar er ljóst að þörfin fyrir stuðning við fjölskyldur mun aðeins aukast. Sem stéttarfélag eigum við að standa með félagsfólki okkar og tryggja þeim sveigjanleika og stuðning í þessum aðstæðum.
Sem formaður VR, mun ég í næstu kjarasamningum beita mér fyrir því að launað leyfi félagsfólks vegna veikinda barna verði útvíkkað þannig að það nái einnig til maka og foreldra.
Hvað myndi þetta þýða fyrir félagsfólk?
-
Félagsfólk VR fengi 12 launaða daga á hverju 12 mánaða tímabili sem gæti nýst vegna:
-
Veikinda barna
-
Veikinda eða aðstoð við maka
-
Veikinda eða aðstoð við foreldra.
-
-
Sveigjanleiki og öryggi til að sinna fjölskyldu þegar þess gerist þörf án þess að þurfa að velja á milli vinnu og fjölskyldulífs.
Breytingarnar hafa í för með sér:
-
Aukinn fjölskyldustuðning: Félagsfólk geti sinnt fjölskyldumeðlimum sínum án þess að hafa áhyggjur af skertum tekjum.
-
Jafnvægi milli vinnu og einkalífs: Með þessu úrræði er stuðlað að meiri sveigjanleika til að sinna einkalífinu.
-
Samfélagslega ábyrgð: Að styðja félagsfólk í að sinna öldruðum foreldrum eða maka í veikindum er skref í átt að sterkara og samheldnara samfélagi.
Með því að útvíkka launað leyfi vegna veikinda barna, maka og foreldra, getum við veitt félagsfólki VR öryggi og sveigjanleika sem skiptir sköpum í þeirra daglega lífi. Þetta er skref í átt að fjölskylduvænni og sanngjarnari vinnumarkaði.