Þorsteinn Skúli Sveinsson
Á Kjaramáli - gefum félagsfólki VR rödd
Framboðstilkynning
Kjarabarátta á mannamáli
Kæru vinir og félagsfólk VR,
Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í embætti formanns VR í formanns- og stjórnarkosningum sem fram fara innan félagsins í mars næstkomandi. Ég vil endurvekja rödd félagsfólks og vinna markvisst að bættum kjörum og jöfnuði.
Sjálfur er ég vel kunnugur starfsemi VR þar sem ég átti fjórtán farsæl starfsár hjá félaginu og starfaði þar af lengst sem sérfræðingur á kjaramálasviði. Ásamt því hef ég starfað sem lögfræðingur hjá Sameyki, Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu og í dag á mannauðs- og stefnusviði BYKO. Þessi reynsla hefur gefið mér góða innsýn í að sitja beggja vegna borðsins og dýrmætan skilning á þörfum félagsfólks.
Sem formaður VR mun ég leggja áherslu á jöfnuð og bætt kjör fyrir öll. Ég vil skapa VR sem sameinar ólíkar raddir og tryggja það að félagsfólk á öllum aldri finni fyrir því að starfað sé í þeirra þágu.
Mín helstu áherslumál:
-
Að setja á stofn leikskóla fyrir börn félagsfólks VR á aldrinum 12-24 mánaða.
-
Að jafna rétt félagsfólks með því að varasjóður verði lagður niður í þeirri mynd sem hann er í dag og teknir upp fastir styrkir.
-
Að þungaðar félagskonur fái auka 4 vikur við hefðbundinn veikindarétt á launum.
-
Að félagsfólk geti ráðstafað launuðu leyfi vegna veikinda barna hvort heldur sé vegna veikinda barna/maka/foreldra.
-
Að unnið sé áfram í jöfnun réttinda milli hins almenna og opinbera vinnumarkaðs, til að mynda með 36 stunda vinnuviku og 30 daga orlofi fyrir allt félagsfólk.
-
Að eiga stöðugt samtal við stjórnvöld og samningsaðila vegna bættra kjara félagsfólks.
Ég mun fylgja eftir mikilvægum málum sem fyrrum formenn og öflugt starfsfólk félagsins hefur unnið að á síðustu árum. Má þar m.a. nefna uppbyggingu húsnæðis fyrir félagsfólk VR (Blævar), kjör hinna lægst launuðu, starfsmenntamál og mikilvægi þess að jafnrétti sé gætt í hvívetna hjá hinu almenna félagsfólki.
Ég tel það grundvallaratriði að formaður VR sé óháður pólitík og einbeiti sér alfarið að málefnum félagsfólks. Þannig tryggjum við opið og gagnsætt samtal við stjórnvöld, óháð því hvaða flokkar eru við völd og megum við aldrei láta pólitískar skoðanir skyggja á hagsmuni félagsfólks.
Kæra félagsfólk, framtíð VR er í okkar höndum. Ég sækist eftir ykkar trausti og stuðningi til að taka við embætti formanns VR. Það er mér hjartans mál að skapa sanngjarna og sterka framtíð fyrir félagsfólk og mun leggja mig allan fram í þetta mikilvæga hlutverk. Sameinum krafta okkar – fyrir sterkara VR og bjartari framtíð.
Með ósk um ykkar stuðning,
Þorsteinn Skúli Sveinsson
Leikskóli fyrir börn félagsfólks
Leikskólamál eru mikilvæg fyrir nýbakaða foreldra, þar sem óvissan um dagvistunarúrræði að loknu fæðingarorlofi veldur óþarfa álagi.
Ég vil beita mér fyrir stofnun leikskóla fyrir félagsfólk VR, þar sem fjármögnun kemur frá VR, leigufélagi og niðurgreiðslum sveitarfélaga.
Með þessu vil ég tryggja foreldrum öryggi og stöðugleika í þessum viðkvæma áfanga lífsins og styðja við barnafjölskyldur á vinnumarkaði.
Styrkir í stað varasjóðs
Varasjóður VR hefur verið gagnrýndur fyrir ójöfnuð í úthlutun þar sem greiðslur ráðast af tekjum félagsmanna.
Ég vil leggja varasjóðinn niður og innleiða sanngjarnara styrkjakerfi þar sem allir félagsmenn hafa jafnan rétt á að nýta styrki í flokkum eins og líkamsrækt, sálfræðiþjónustu, sjúkraþjálfun og fæðingarstyrk.
Þetta tryggir jafnræði og nýtist betur þörfum félagsfólks.
Aukinn veikindaréttur
Ég vil tryggja félagsfólki VR aukinn stuðning við fjölskyldulíf og heilsu.
Þetta felur í sér auka veikindarétt fyrir þungaðar konur, sem veitir þeim öryggi og sveigjanleika á meðgöngu og útvíkkun launaðs leyfis sem nær til veikinda barna, maka og foreldra.
Þessar breytingar stuðla að jafnvægi milli vinnu og einkalífs, bæta lífsgæði félagsfólks og styðja við fjölskylduvænni vinnumarkað.
Jöfnun réttinda á vinnumarkaði
Jöfnun réttinda milli almenns og opinbers vinnumarkaðar er lykilatriði í baráttunni fyrir réttlæti.
Ég mun berjast fyrir 30 daga orlofi og 36 stunda vinnuviku fyrir félagsfólk VR, sem stuðlar að betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs, aukinni starfsánægju og réttlátu vinnuumhverfi fyrir alla.
Með þessum breytingum tryggjum við félagsfólki sömu kjör og réttindi og á opinbera vinnumarkaðnum.
Samtalið - lykillinn að árangri
Ég vil tryggja reglubundin samskipti við samningsaðila, stjórnvöld og félagsfólk VR til að bæta kjör og leysa úr brýnum málefnum.
Með tímanlegum undirbúningi kjarasamninga og sýnilegri forystu vil ég skapa traustan vettvang þar sem rödd félagsfólks er í forgrunni, stuðlað að betri tengslum og lagður grunnur að bjartari framtíð.
Verum saman í liði!
Sjálfboðaliðar óskast
Vilt þú taka þátt í vegferðinni? Hvort sem þú getur lagt fram hugmyndir, tíma, eða orku - öll framlög eru mikils metin.
Ef þú hefur áhuga á að verða hluti af teymi sjálfboðaliða, ekki hika við að hafa samband.